30.3.2009 | 16:15
Steingrímur Joð er gleyminn
Þegar Davíð fór var gengisvísitalan 189,64 (hafði lækkað úr 216,13 frá áramótum). Í dag er gengisvísitalan 212,07 og hefur því hækkað um 11,83%
Öll gengistryggðlán hafa því hækkað um 11,83% frá því að nýr Seðlabankastjóri tók við !!!
Reyndar hafa stýrivextir lækkað um 1 prósentustig (en Davíð og Eiríkur höfðu haft áform um að lækka þá um 3%)
Af hverju er Steingrímur Joð ekki að gagnrýna Seðlabankann núna? Af hverju er engin gagnrýni á Seðlabankann?
Steingrímur gleymir furðu mörgu þegar hann er kominn í ríkisstjórn sbr. hið gleymda frumvarp VG um lækkun vaxta á verðtryggð húsnæðislán (sjá: http://24.blog.is/blog/24/entry/839866/)
Skilaskyldan heldur ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég get nú ekki lesið annað út úr þessari frétt en Steingrímur J. hafi útskýrt ágætlega hver er ástæðan fyrir lækkun á krónunni.
Jakob Falur Kristinsson, 30.3.2009 kl. 16:33
Það vantar ekki að hann var með skýringar. Það læðist samt að mér sá grunur að ef dýralæknirinn hefði verið í þessum sporum, með þessar skýringar, þá hefði nú eitthvað heyrst í Steingrími. Kannski smá gagnrýni á Seðlabankann :-)
Þetta er svona svipað og það sem hann sagði um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ÁÐUR en hann fór í stjórn og síðan EFTIR að hann komst í stjórn. Fór úr því að vera Vinstri-Grænn í það að vera Hægri-Blár !
Jóhannes Jónsson, 30.3.2009 kl. 20:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.